0217
Blaðamennska
Siðareglur Blaðamannafélagsins
og Siðaskrá DV
Siðareglur Blaðamannafélags Íslands eru á vef félagsins. Þessar reglur eru að grunni til orðnar 40 ára gamlar og eru í endurskoðun. Einkum vantar í þær meiri áherslu á skyldur blaðamanna við sannleikann. Reglurnar eru í sex liðum.
Fyrsta grein fjallar um samstöðu manna. “Blaðamaður leitast við að gera ekkert það, sem til vanvirðu má telja fyrir stétt sína eða stéttarfélag, blað eða fréttastofu og skal jafnan sýna drengskap í skiptum sínum við starfsfélaga.”
Önnur grein fjallar um ábyrgð manna og trúnað við heimildarmenn. Þriðja grein fjallar mest um tillitssemi. “Hann forðast allt, sem valdið getur saklausu fólki, eða fólki sem á um sárt að binda, óþarfa sársauka eða vanvirðu.”
Þar er líka fjallað um vandvirkni blaðamanna í vinnubrögðum: “Blaðamaður vandar upplýsingaöflun sína, úrvinnslu og framsetningu svo sem kostur er og sýnir fyllstu tillitssemi í vandasömum málum.”
Fjórða grein fjallar um nafnbirtingar. “Blaðamenn skulu hafa ríkt í huga hvenær almennt öryggi borgaranna, sérstakir hagsmunir almennings eða almannaheill krefst nafnbirtingar.” Hver maður er talinn saklaus þar til sekt er sönnuð.
Fimmta grein fjallar um ýmsan árekstur hagsmuna og um sannfæringu sem leiðarljós. Blaðamaður “gætir þess að rugla ekki saman ritstjórnarlegu efni, sem hefur augljóst upplýsinga- og fræðslugildi, og auglýsingum í myndum og/eða máli”.
Sjötta grein siðareglna Blaðamannafélagsins fjallar um kæruferlið. Fyrst skulu menn “leita leiðréttingar mála sinna hjá viðkomandi fjölmiðli”. Siðanefndin kveður upp rökstuddan úrskurð svo fljótt sem kostur er.
Einnig eru til siðaskrár Fréttablaðsins og DV. Þær eru miklu ýtarlegri en siðareglur Blaðamannafélagsins, fjalla einnig um verklagsreglur af ýmsu tagi, sem reynslan hefur sýnt, að geti komið að gagni við störf á ritstjórn.
Siðaskrá DV eru eins og siðaskrá Fréttablaðsins, að frátöldu þessu:
DV er ágengur fréttamiðill.
Hver gerði hvað, hvar, hvenær, hvernig, hvers vegna og hvað svo?
Ritstjóri getur ákveðið í sérstökum tilvikum að vernda nafnleynd viðmælenda, sem talað er við í beinni ræðu, ef öryggi hans er talið ógnað með nafnbirtingu.
Blaðamenn DV kynna sig ávallt sem blaðamenn DV við fréttaöflun.
Skoðanir eru einkum birtar í fyrstu opnu blaðsins og stundum á næstsíðustu síðu þess.
Ritstjórar DV svara gagnrýni á blaðið.
Mál utan heimilis eru opinber. Fjármál og fyrirtæki eru opinber.
DV greiðir fastar og auglýstar upphæðir fyrir fréttaskot.
Starfsmenn og helztu aðstandendur eru ekki til umfjöllunar í blaðinu nema að sérstaklega gefnu tilefni.
Starfsmenn og helztu aðstandendur geta ekki unnið til verðlauna í leikjum á vegum blaðsins.
Starfsmenn ritstjórnar gæta þess í öllum sínum verkum að efla traust lesenda á blaðinu og starfsfólki þess.
DV hefur svo allt annan kafla um nafnbirtingar en Fréttablaðið:
DV birtir jafnan nöfn og myndir fólks, sem er í fréttum blaðsins, svo framarlega sem blaðið kemst yfir þessar upplýsingar.
Ef fréttin er stutt og höfuðpersóna hennar er aðeins ein, þarf ekki myndatexta.
Stundum er frestað birtingu nafna um tíma, einkum fólks, sem látizt hefur óvænt. Þetta gerir blaðið í samráði við aðra aðila, sem koma að málinu.
Undantekningar byggjast einkum á hagsmunum brotaþola. Ekki eru birt nöfn og myndir þolenda kynferðisbrota.
Ef fleiri en ein er höfuðpersóna fréttar, tengja myndatextar eða fyrirsagnir saman nöfn og myndir.
Slík frestun birtingar kemur síður til greina, ef hún gæti valdið óþægindum hjá aðstandendum annara, sem af komust í slysinu.
Ekki eru birt nöfn þolenda kynferðisbrota.
Verkefni:
Eru þessar siðareglur enn í gildi?
Er hægt að fá að sjá þær?