Níu borgir komnar inn

Punktar

Vel gekk að koma á netið leiðbeiningum mínum um borgarrölt. Inn komu Amsterdam, Dublin, Feneyjar, Kaupmannahöfn, London, Madrid, New York, París og Róm. Allt tekið úr ferðabókum mínum, gefnum út árin 1981-1996. Hér á síðunni er það undir flokknum Borgarrölt. Gengið er þannig frá efninu, að göngutúrar rekja sig síðu fyrir síðu í stuttum texta og ótal myndum. Ekki fannst textinn um París, svo að ensk útgáfa er notuð þar. Ætla að setja upp fleiri svona þræði. Byrjaði raunar á Istanbul. Fer svo smám saman um spennandi staði, Marokkó, Egyptaland, Persíu Indland, Kenía og Suður-Afríku. En það tekur lengri tíma en klippið úr bókunum.