Nokkrar tölur um fávitana

Punktar

Vefengdi um daginn kenningu Þráins Bertelssonar um, að 5% þjóðarinnar séu fávitar. Stakk upp á margfalt hærri tölu. Því til stuðnings eru nokkur dæmi. Meirihluti þjóðarinnar kaus landsins mesta loddara til forseta. Rúmlega helmingur tók þátt í skrípaleik þjóðaratkvæðis um daginn. Nærri helmingur telur rétt að herða stríðið við útlönd með því að neita að borga IceSave. Meirihlutinn telur, að börnum okkar beri að borga ofurlán nútímafólks með sköttum næstu áratuga. Þriðjungur hyggst kjósa hrunverja til valda að nýju við fyrsta tækifæri. 76% vilja ríkisframfæri landbúnaðar. Kexrugluð þjóð.