Nóttin verður löng

Punktar

Bandaríkjamenn hafa líklega endurkjörið Bush sem forseta, veitt honum meirihluta í báðum deildum þingsins og gefið honum tækifæri til að pakka íhaldsmönnum í hæstarétt, sem mun hafa áhrif áratugi fram í tímann. Allt þetta mun fela í sér, að stjórnarhættir forsetans verða enn harðari en áður. … Öllu mannkyni eru þetta skelfileg tíðindi, þótt kannanir hafi lengi sagt hið sama. Einkum er vont fyrir samstöðu Vesturlanda, að meirihluti Bandaríkjamanna skuli styðja róttæka stefnu, sem annars staðar á Vesturlöndum er talin langt utan við heilbrigða skynsemi og pólitískt litróf. …