Nú sjá menn eftir öllu

Punktar

Mér kemur á óvart, að andstæðingar forsetans eru fleiri en fylgismenn hans í skoðanakönnun Gallups. Þjóðin virðist ekki vera eins vanþroskuð og ég hélt. Á einum sólarhring áttuðu sig margir á, að forsetinn opnaði Pandórubox, sem verður okkur til vandræða. Uppruni vandans var hjá stjórnarandstöðunni, sem gældi við ábyrgðarleysi kjósenda. “Við borgum ekki skuldir einkafyrirtækis”, æptu þingmenn Framsóknar á fundum Alþingis. Þjóðin lét taka sig í rúminu og flykktist í afneitun á skrá hjá kampavíns-vinum Sigmundar Davíðs formanns. Fyrirgangurinn tók útrásarforsetann á taugum. Nú sjá sumir eftir öllu saman.