Ekki bara hrunverjar og sjálfstæðismenn eru siðlausir. Nútíminn í heild er siðlaus. Hann er fótósjoppaður. Fyrirmyndir unga fólksins eru innantómar staðalímyndir, framleiddar í fótósjopp. Fjölmiðlar taka hver á fætur öðrum viðtöl við Jón stóra. Sem er bara að reyna að hræða fólk til að hlýða sér. Þannig nudda fjölmiðlar sér utan í fótósjopp frægð. Risin er fjölmenn stétt frægðarfólks, sem er frægt fyrir að vera frægt. Nefni ekki önnur nöfn til að gleðja ekki þá mörgu, sem telja fótósjopp betra en ekkert. Unga fólkið er meira eða minna varnarlaust og verður margt hvert ekki nothæft sem borgarar.