Ný blaðra nálgast

Punktar

Þegar keyptir hafa verið 5373 nýir bílar janúar-júní 2012, er óhætt að segja kreppuna að baki. Þegar atvinnuleysi minnkar stöðugt og nálgast tölu þeirra, sem ekki vilja vinna, er óhætt að segja kreppuna að baki. Þegar bara er hægt að manna sumar greinar með erlendu vinnuafli, er óhætt að segja kreppuna að baki. Er gjaldeyriseyðsla okkar í ferðum erlendis jafnast á við sprengingu í tekjum af komu ferðamanna til landsins, er óhætt að segja kreppuna að baki. Þegar 220 nýir LandCruiser bílar hafa verið fluttir inn á árinu, er óhætt að segja kreppu auðmanna að baki. Allt stefnir óðfluga í nýja efnahagsblöðru.