Óbærilegur gorgeir

Punktar

Gorgeir forseta Íslands er óbærilegur. Drýldnin var mikil í útrásinni, er hann sagði aðrar þjóðir eiga að fara að hætti Íslendinga. Allir vita um sjóferð þá. Eftir hrun heldur Ólafur Ragnar áfram í sama dúr. Íslendingar eru fyrirmynd í efnahagsbata, segir hann í BBC. Hvílíkt endemis rugl. Verst er, að margir trúa frelsaranum. Það er óhollt fyrir skammsýna, heimska og gráðuga þjóð að telja sig vera öðrum betri. Fjármála- og viðskiptastéttin nýja er siðferðilega með allt niðrum sig. Pólitíkin á Alþingi er bara garg í fuglabjargi. Helztu lukkuriddarar landsins leika enn lausum hala.