Villtist á Gló í fyrradag. Fékk ofeldaðan kjúkling þurran og kaldan upp úr hitakassa á 1690 krónur. Með voru þrjár blöndur af hversdagslegu hrásalati, bragðlítil hrísgrjón, svo og ágætis kryddmauk tvenns konar, sem bjargaði hrísgrjónunum. Fyrir rúmu ári var Gló spennandi kostur í veitingaflórunni. Þá eldaði þar Sólveig Eiríksdóttir og þá var kjúklingurinn rósmarínkryddaður og mjög bragðgóður. Sá tími vonarinnar virðist vera liðinn. Umhverfið er tæpast lystaukandi. Staðurinn er í afgangsplássi í gangvegi milli verzlana og skrifstofa í Listhúsi við Engjateig 19. Eiginlega bara fyrir sérvitringa.