Ekki er félegt ástandið á þjóðinni þessa dagana. Aflandsgreifar í skattaskjóli eru enn ráðherrar og formenn Sjálfstæðisflokksins. Helzti aðdáandi Sigmundar Davíðs og skattaskjólanna er orðinn forsætisráðherra. Klappstýra útrásarinnar og hatursmaður stjórnarskrár fólksins vill enn einu sinn hætta við að hætta við Bessastaði. Mótmæli tugþúsunda á Austurvelli geta ekki lægt hrokann, lygina og fýluna í Bjarna Ben. Hann er farinn er að minna óþægilega á Davíð Oddsson, áður en sá snappaði. Enn verða menn ríkir á pilsfaldi, aðstöðu, skattsvikum, hækkun í hafi og skyldum íþróttum auðgreifanna. Sem fyrr erum við bananaþjóðin fræga.