Ofsahrifnir af höstlara

Punktar

Alex Jurshevski er höstlari eins og Ómar Valdimarsson bendir réttilega á. Rekur Recovery Partners, sem fiskar sér hagnað út á erfiðleika ríkisstjórna. Allt getur verið satt, sem hann segir, en ég vil taka því með varúð. Mér finnst athyglisvert, hverjir taka upp mál hans í blogginu og á fésbókinni. Þeir, sem segja erlenda fjölmiðla keppast um að taka málstað Íslands. Þeir, sem heimta billegar lausnir á vanda okkar. Til dæmis að fara í fjármálastríð við samfélag vestrænna ríkja. Þeir hlaupa upp um hvern galdrakarlinn á fætur öðrum. Ofsatrú á höstlara einkennir götóttan málstað þessa auðginnta fólks.