Mér verður óglatt af að hlusta á þingmenn Framsóknar og Borgarahreyfingar. Þeir tala eins og ríkissjóður sé fyrirbæri út í geimnum. Ekki sé til sá vandi, að hann verði ekki leystur með ríkissjóði. Það er rosaleg frekja í þessari hugsun. Ríkissjóður er nefnilega ekkert annað en skattgreiðendur næstu áratuga. Framsókn og Borgarar vilja, að börn okkar og barnabörn borgi fyrir þá. Mér finnst það ógeðfelld hugsun, en hún er því miður útbreidd í samfélaginu. Fólk lítur á ríkissjóð sem limbó, er gera megi kröfur í. En Davíð og Geir gerðu ríkissjóð svo skuldugan, að jaðrar við ríkisgjaldþrot.