Óheiðarleg frík

Punktar

SKOÐANAKÖNNUN MMR sýnir, að leiðtogar ríkisstjórnarinnar njóta einskis trausts. Eru ekki taldir heiðarlegir, hafa engan kjörþokka og ekki taldir í tengslum við fólk. Hafa raunar enga kosti, sem mann mega prýða. Hafa rústað flokkum sínum á tveim árum. Ég efast um, að neitt hliðstætt hafi gerzt annars staðar í Evrópu í hálfa öld. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson eru einfaldlega frík. Stela þjóðareigum og afhenda gæludýrum. Rústa Landspítalanum. Ljúga og falsa út í eitt. Sýna vinnudeilum furðulegt áhugaleysi. Mál er að linni því rotna ástandi, að tveir lygnir og siðblindir bófaflokkar ræna og rupla heila þjóð.