Ölæði og verðlaunin

Punktar

Barack Obama hefur ákveðið að undirrita ekki alþjóðabann við jarðsprengjum, sem 150 ríki hafa staðfest. Hann líkist Georeg W. Bush að því leyti. Obama ákvað um helgina að fjölga hermönnum um Afganistan. Hann er verri en Bush að því leyti. Obama hefur ákveðið að leggja fram lélegt tilboð um minni útblástur skaðlegra lofttegunda, líkist Bush að því leyti. Ætlar ekki að vera við lokahrinu loftslagsfundarins mikla í Kaupmannahöfn. Ég skil ekki, hvernig innantómur kjaftaskur og skaðvaldur fær friðarverðlaunin. Hallast að því, að norsku þingmennirnir í nefndinni hafi afgreitt málið í ölæði.