Öll dýrin eru orðin vinir

Punktar

“Við erum vinir,” sagði Steingrímur um Ögmund, þegar hann gekk til fundar þingflokks vinstri grænna í gær. Fundurinn var notaður til að tala um veðrið og haustið, flugið og Soffíukirkju í Miklagarði. Fundarmenn sögðu hann hafa verið vel heppnaðan. Eindrægni hafi ríkt, enda hvorki talað um IceSave né Alþjóða gjaldeyrissjóðinn. Ögmundur sagði fundinn hafa verið jákvæðan og góðan. Þetta er lagið, hópefli í stað vandræða. Sjáum fyrir okkur, hvernig vandamál verða leyst í skóginum, þegar öll dýrin eru orðin vinir. Eru bara alls ekki rædd. Á næsta fundi ræðir Steingrímur um Bláu moskuna og Topkapi.