Omega og útrýmingin

Punktar

Ísraelsstjórn segist ætla að útrýma Hamas núna. Samt nýtur Hamas stuðnings meirihluta íbúa Gaza og vann þar síðustu kosningar. Svo að Ísraelsríki þarf að útrýma meirihluta íbúanna, ef hótanir þess eiga að rætast. Ísrael hefur lengi verið hryðjuverkaríki, sem leikur lausum hala í vestrænu samfélagi. Endalausir glæpir Ísraelsríkis og Ísraelsþjóðar eru framdir á mestri ábyrgð Bandaríkjanna, sem jafnan setja kíkinn fyrir blinda augað. Og hér á landi sérhæfir sjónvarpsstöðin Omega sig í svívirðilegum spuna fyrir Ísrael. Hún er tákn hins fáránlega ástands. Efna þarf til mótmæla við húsnæði hennar.