Órar frá fyrri öld

Punktar

Stundum er talað um Framsókn sem félagshyggjuflokk og þá byggt á þáttum úr fortíðinni. Hins vegar gerbreyttist flokkurinn við yfirtöku Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Færði sig snöggt á hægri jaðarinn. Munur hans og jaðarflokka Evrópu er, að fyrirlitning og hatur á fátækum kemur í stað útlendingahaturs. Gerðir ríkisstjórnar SDG eru í þessum nýja anda. Silfurskeiðungur er nákvæm lýsing á formanninum. Í skjóli hans er faðirinn, er gerir opinberlega hróp að fólki. Og spámaðurinn, sem rekur haturssíðu gegn Ríkisútvarpinu. Það eru draumórar, að Vigdís Hauksdóttir tali ekki fyrir krumpaða auðmannagengið.