Vertinn á Travel Inn gegnt Umferðarmiðstöðinni er löngu orðinn heimsfrægur að endemum. Erlendir bloggarar birta myndir af morgunmatnum og skrifa um Einar Guðlaugsson sem einstæðan hótelmann. Ávarpaði gest sem “you bloody American”, neitar að horfa á staðfestingar pantana, neitar að gefa til baka, o.s.frv. Enginn núlifandi Íslendingur leggur eins hart að sér við að ófrægja okkur í augum útlendinga. Fawlty Towers eru barnaleikur í samanburði við þetta. Samtök ferðaþjónustu verða að taka Travel Inn/Pavi af skrám, áður en meira tjón verður. Karlinn ærist, ef hann er spurður um verð á gistingu.