Orðinn að gólftusku

Punktar

Davíð Oddsson og kvótagreifar segja Bjarna Benediktssyni að halda kjafti, hlýða og vera góður. Þess vegna beygir Bjarni sig hvað eftir annað í duftið fyrir ruglinu í Sigmundi Davíð. Þess vegna fær Bjarni ekki einu sinni að stjórna fundum ríkisstjórar, þegar SDG er fjarri. Orðinn að gólftusku. Fyrir kvótagreifa skiptir öllu, að stjórnarsamstarfið endist. Það framlengir tök kvótagreifa á stolna þjóðarauðnum. Af skrifum skrímsladeildar Flokksins má ráða, að henni finnist það eini kosturinn í stöðunni. Því mun Bjarni hengja haus meðan Viðreisn og Björt framtíð hirða vitrænan hluta fylgis flokksins.