Óþægileg nærvera

Punktar

Hinn goðumlíki Egill Einarsson, einnig nefndur Gilzenegger, er enn að plaga þjóðfélagið með opinberri nærveru sinni. Í upphafi vakti þjóðhetjan athygli fyrir ofbeldishneigð sóðaskrif í bloggi. Hvatti hann meðal annars til nauðgana á nafngreindu fólki. Þjóðfélagið var þá orðið svo tjúllað fyrir hrun, að símaskráin tók snillinginn á forsíðuna. Bók hans varð sölubók, sem andvana foreldrar gáfu saklausum börnum. Nýlega fengu rugludallar hann til að stjórna fylleríshátíð í Vestmannaeyjum. Ekkert bendir til, að þessi sómi Íslands hafi neitt séð að sér eða reyni að fara með veggjum í nærveru sinni.