Óþekkjanlegur flokkur

Punktar

Bjarni Benediktsson er kominn með flokkinn langt frá hægfara íhaldi uppruna hans. Kominn með róttækan auðmannaflokk, sem misnotar galinn Framsóknarflokk til að efla völd greifa, einkum kvótagreifa. Kominn með flokk lyga og svika. Framsókn fær að leika lausum hala gegn því, að greifar fái dúsur, þegar fé er millifært fram og aftur. Flokkurinn er í höndum Bjarna að reyna að auka bil ríkra og fátækra og magna stéttaskiptinguna. Í staðinn fá Gunnar Bragi, Sigurður Ingi og Vigdís Hauks að sparka í allt og alla. Það er lið, sem á að vera í felum, alls ekki í útstillingunni. Brostinn er flótti í lið Bjarna.