Ótímabær skoðun

Punktar

Ég treysti því ekki, sem Jóhanna og Steingrímur segja um viðbrögð Bretlands og Hollands við fyrirvörum Alþingis. Meira getur hangið á spýtunni en þau hafa viðurkennt. Treysti ekki heldur frásögnum stjórnarandstöðunnar. Mæli með, að menn fresti skoðunum á þessum viðbrögðum unz þeir hafa fengið að sjá gögnin sjálf. Sennilega verður að draga þau út með töngum eins og fyrri daginn.