Nánast daglega les ég í blogginu, að evran sé að hrynja. Vitnað í sveiflur í skráningu innan sólarhringa. Þetta meinta hrun á að sýna, að Evrópusambandið sé aðframkomið. Ríki þess muni hrynja hvert af öðru eins og dómínó, þegar eigendur peninga treysti þeim ekki lengur. Því meira, sem ég les af þessari óskhyggju, þeim mun meira stendur evran í stað. Óskhyggjan leitar útrásar á morgnana, þegar evran hnígur, en heldur svo kjafti, þegar hún rís síðar um daginn. Evran er ein allra traustasta mynt heims. Mun verða það áfram um ókomnar og ótímabærar andlátsfréttir í bloggi andstæðinga evrópuaðildar.