Óviðkunnanleg sérhagsmunagæzla

Punktar

Mér finnst í hæsta máta óviðkunnanlegt, að Ólöf Nordal alþingismaður tjái sig um pólitík, hvað þá um stóriðju. Hún er einn hrunverja, var þingmaður Flokksins í hruninu. Þar á ofan er hún gift álveri Alcoa á Reyðarfirði. Hún er beinn sérhagsmunaaðili. Ein þeirra, er tjáir sig um afleiðingar af stefnu Flokksins fyrir hrun. Eins og þær séu framleiddar af núverandi ríkisstjórn. Ein þeirra, sem tjáir sig um afleiðingar af stóriðjustefnu. Sem fól í sér hraksmánarlegt verð á útseldri vatnsorku. Hún ætti fremur að ganga um götur borgarinnar, syngja sálma og lemja sjálfa sig með svipu í sáluhjálparskyni.