Pakkað í Hæstarétt

Punktar

Enn er verið að pakka í Hæstarétt. Um daginn var frændi Hertogans valinn fram yfir aðra umsækjendur, sem allir voru hæfari en frændinn. Nú á að ráða spilavin Hertogans fram yfir aðra umsækjendur, sem Hæstiréttur telur flesta hæfara en spilavininn. Frændi Hertogans skilaði auðvitað séráliti. … Í langvinnri tíð þessarar ríkisstjórnar hafa pólitískar skipanir færzt í vöxt. Eindregnar er pakkað í Hæstarétt, Ríkisútvarpið, Símann og aðrar stofnanir ríkisins en áður þótti sæma. Hæfileikar skipta minna máli, enda gerast nú opinber klögumál annarra umsækjenda tíðari en áður var. …