Persónugerum vandann strax

Punktar

Við þurfum að persónugera vandann meira. Eins og Bandaríkjamenn gera. Þeir stinga gróðafíknum bankastjórum í fangelsi. Bernard Ebbers er í 25 ára fangelsi og Jeff Skilling í 24 ára fangelsi. Ken Lay og Andrew Fastow eru í 10 ára fangelsi hvor. Dennis Koslowski og Mark Schwartz í átta ára fangelsi hvor. Hér ganga þeir lausir. Ævintýramennirnir Sigurður Einarsson, Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurjón Þ. Árnason, Halldór J. Kristjánsson og Lárus Welding. Fyrrum Seðlabankastjóri Bandaríkjanna, Alan Greenspan, hefur játað mistök sín. Það mun Davíð Oddsson aldrei gera, þótt hann fari í gapastokk.