Persónuvernd Jóns Ásgeirs

Punktar

Jón Ásgeir Jóhannesson heldur uppi vörnum gegn Glitni, sem vill upplýsingar um lúxusíbúðir í New York. Jón Ásgeir segir dómaranum, að þessar upplýsingar séu persónuleg einkamál, sem varði ekki málið. Við eigum eftir að heyra slíkt oftar í vörnum fjárglæframanna. Fjármál þeirra eru þeirra einkamál, segja þeir. Því miður höfum við gengið götuna of langt til persónuverndar. Höfum sett upp sérstaka ríkisstofnun til að hindra upplýsingar um fjármál manna. Sú stefna gagnast ekki almenningi, heldur aðeins fjárglæframönnum. Hún leggur stein í götu tilrauna okkar til að koma lögum yfir Jón Ásgeir.