Kristján L. Möller reynir enn að blekkja þjóðina. Segist ekki hafa stungið undir stól skýrslunni frægu um Vaðlaheiðargöng. Efnislega segist hann hafa falið hana undir rúmi. Það sé alls ekki sama málið. Skýrslan hafi verið á neti Háskóla Íslands. Samt var ekki hægt að finna hana þar með leit. Menn urðu að vita nákvæmlega, hvað skýrslan hét, til að finna hana. Ráðuneytið sjálft faldi skýrsluna hjá sér. Þetta heitir að fela skýrsluna, stinga henni undir stól. Möllerinn telur samt allt annað mál að fela skýrsluna með því að stinga henni undir rúm. Andverðleikakarl með pólitískan orðhengilshátt.