Pottasleikir Bandaríkjanna

Punktar

Hvað eiga Egyptaland, Jórdanía, Sýrland, Marokkó, Sádi-Arabía, Pakistan og Úzbekistan sameiginlegt? Fyrir utan að vera íslömsk ríki undir stjórn harðstjóra, sem óttast Osama bin Laden meira en þeir óttast Allah. Fyrir utan að brjóta daglega mannréttindi með ólögmætum handtökum og fangelsunum. Þau eiga það sameiginlegt að geyma og pynda fanga fyrir Bandaríkin í aukavinnu. Menn furða sig til dæmis á góðum móttökum, sem Islam Karimof, sjúklega ofbeldishneigður harðstjóri Úzbekistans, fékk í Hvíta húsinu hjá George W. Bush. Karimof steikir nefnilega óvini sína í potti.