Pútín hirti Krímskaga

Punktar

Vladimír Pútín náði Krímskaga á vald Rússa án blóðsúthellinga. Her Úkraínu er vanbúinn að hrekja burt her Rússlands. Enda eru Rússar í meirihluta íbúa skagans og styðja líklega flestir innrásina. Obama í Bandaríkjunum er bara Gúmmí-Tarzan, sem ræður ekki við neitt. Enn síður Evrópusambandið, sem ekki hefur neitt vægi í hermálum. Senn munu Vesturveldin tóna niður stóru orðin. Staðreynd líðandi stundar verður viðurkennd. Úkraína græðir síðan á að hafa losnað við óróasvæði. Hærra hlutfall íbúa verður mælandi á tungu landsins og fylgjandi trú patríarkans í Kænugarði. Verður þéttari Úkraína en hún var.