Ráðherra niðurlægir sig

Punktar

Verstu fjárglæframenn þjóðarinnar hafa kannski ekki brotið lög, bara farið á svig við þau. En þeir eru siðferðilega úthrópaðir fyrir að valda þjóðinni tjóni upp á tugi milljarða. Ekki gengur, að fjármálaráðherra sé kammó við slíka, segist til dæmis vera sammála þeim. Steingrímur Sigfússon getur ekki sagzt vera sammála fjárglæframanni um neitt. Verður að forðast orðalag af því tagi. Hvað sem segja má um Jón Ásgeir Jóhannesson lagalega séð, þá er hann fjárglæframaður, sem hefur valdið þjóðinni miklu tjóni. Út í hött er, að ráðherra eigi í einhverjum orðaskiptum við hann. Það er niðurlægjandi.