Ráðherra pantar skýrslu

Punktar

Engin ráðagerð er svo arfavitlaus, að ráðherra geti ekki fundið sérfræðinga til að mæla með henni, lagatækna, verktækna, bókhaldstækna. Steingrímur J. Sigfússon hefur fundið verkfræðinga til að mæla með Vaðlaheiðargöngum. Telur það núlla út álit óháðra aðila. Framtak ráðherrans er þetta venjulega rugl, sem er pólitíkinni til skammar. Fyrir löngu ákváðu Steingrímur og Kristján Möller, að þessi pólitísku göng skyldu gerð, burtséð frá allri hagkvæmni. Þeir eru pólitíkusar gamla tímans, hins gamla Íslands, sem varð endanlega gjaldþrota í október 2008. Pantaðar sérfræðingaskýrslur breyta engu um það.