Ofan á aðrar skrautlegar gerðir og yfirlýsingar er umhverfisráðherra orðinn ber að lygi í máli Þjórsárvera. Hvorki Rangárþing ytra né Skagafjörður hafa gert alvarlegar athugasemdir við friðlýsingu. Rangárþing ytra hefur engar athugasemdir við friðlýsinguna, segir Guðmundur Ingi Gunnlaugsson oddviti. Skagafjörður samþykkti friðlýsingu með níu atkvæðum gegn engu, segir Bjarni Jónsson oddviti. Sigurður Ingi Jóhannsson umhverfisráðherra er landsins mesti hatursmaður náttúru og umhverfis. Kann sér ekki hóf, er hann skáldar ástæðu til að fresta framkvæmd friðlýsingar eins merkasta svæðis landsins.