Ráðvillt hræðslublik

Punktar

Árni Páll Árnason og Katrín Júlíudóttir hafa ráðvillt hræðslublik í augum. Ráða greinilega ekki við embætti sitt. Enda sést lítið eftir þau. Tími er kominn fyrir þau að hætta þessu volæði. Árni Páll gerir hverja villuna á fætur annarri. Fyrsta skjaldborg hans um heimilin var svo léleg, að fela varð Gylfa Magnússyni að búa til aðra skjaldborg. Tilraun Árna til að friða Range Rover skuldara vakti andúð meðal bloggara og fésbókarfólks flokksins. Það vill styðja fátæklinga, en 110%-hugmynd Árna færir græðgisfólki beztu býtin. Árni hefur ekkert respekt eins og sást í frægu Kastljóss-viðtali.