Rammíslenzkt sósueldhús

Punktar

Madonna … Madonna við Rauðarárstíg er full af gervimarmara og öðrum leikmunum úr frauðplasti, svo og smádóti að hætti ítalskra ferðastaða og hefur pöstur og pítsur í matinn. Samt býður hún ekki ítalska matreiðslu, heldur gamaldags íslenzka matreiðslu frá sósutímanum eins og önnur hús hér á landi, sem segjast vera ítölsk. Jafnvel vínin eru ekki ítölsk, heldur spönsk. En espresso-kaffið er loksins orðið ítalskt og gott og þjónustan minnir þægilega á Ítalíu. …