Reiðir Kínverjar erfiðir

Punktar

Kínverjar eru reiðir þeim, sem hafa truflað ferð ólympíueldsins um borgir heimsins, einkum Frökkum og Bretum. Á netinu er heimtað bann við kaupum á vestrænum vörum. Senn fara þeir að brenna brúður og fána að hætti múslima. Eru aldir upp á áróðri stjórnvalda áratugum saman. Munu seint sættast við vestrænar hugsjónir. Viðurkenna ekki þjóðarréttindi Tíbeta, halda að landið sé kínverskt. Ókleift er að fá Kínverja og múslima ofan af ofbeldi og andúð á mannréttindum. En við getum hindrað slæm áhrif þeirra á vestrænt mannlíf. Í Róm haga menn sér eins og Rómverjar. Eins í Peking, Teheran og Reykjavík.