Reiknað fríhendis

Punktar

Þótt Ólafur Ragnar Grímsson forseti hafi valtað yfir keppinauta sína um forsetaembættið með öllum þorra gildra atkvæða, var sigur hans ekki alger. Minni þáttaka en áður og þó enn frekar hin mörgu auðu atkvæði valda því, að hér eftir er næstum hægt að tala um hann sem umdeildan forseta. … Andstæðingar hans mikla fyrir sér, að hann hafi ekki fengið stuðning helmings kjósenda. Þeir telja saman þá, sem heima sátu, sem auðu skiluðu eða gerðu ógilt og sem kusu annan hinna tveggja. Með sama reikningi má benda á, að flokkar stjórnarinnar fengu síðast ekki fylgi helmings kjósenda. …