Reiknivélin hættulega

Punktar

Gaman er að fylgjast með ferli hinnar svokölluðu reiknivélar, sem Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni hefur jafnan verið hugleikin. Þessi töfravél átti að koma á vefinn „í næstu viku“. Þar átti hver og einn að geta séð sitt herfang. Það var fyrir ári. Síðan hefur loddarinn oft rætt reiknivélina og jafnan boðað komu hennar í næstu viku. Um daginn sagði hann reiknivélina koma um leið og alþingi samþykkti frumvarpið. Nú hefur alþingi samþykkt frumvarpið. Heldur hefur þá tognað í komu hinnar skæðu reiknivélar. Hún á ekki að birtast fyrr en í haust. Má líklega ekki trufla langþreytta kjósendur í kjörklefanum.