Rétt eldaður fiskur

Punktar

Þegar ég nenni ekki að elda, fer ég annað hvort í Kínahúsið við Lækjargötu eða í Pottinn og pönnuna á horni Nóatúns og Brautarholts, einstaka sinnum á Grænan kost. … Potturinn og pannan heldur hátt á lofti merki ódýrra matstaða ár eftir ár og býður betri matreiðslu en nýir staðir í svipuðum verðflokki, svo sem Rossopomodoro, Enrico’s og Póstbarinn. Það eina, er hefur gefið sig, er salatbarinn, sem er orðinn fátæklegur, stundum með þreytulegu jöklasalati og ýmsum blönduðum réttum í stað meiri fjölbreytni í fersku grænmeti. … Ferskur og hæfilega lítið eldaður fiskur dagsins er aðalsmerki Pottsins og pönnunnar. …