Rífandi gangur er á Evrópusambandinu, öfugt við fréttir hatursmanna þess. Enn betri gangur er á evru, hún treystir sig í sessi á kostnað dollars. Öfugt við fullyrðingar andstæðinga. Einkum er stuð á Þýzkalandi, sem býr við óvenjulegan hagvöxt. Sama er að segja um Frakkland og Svíþjóð, í minna mæli þó. Jaðarríkin í suðri og vestri eiga erfiðara með að fóta sig. Þar á meðal er Bretland, þar sem hagkerfið líkist Bandaríkjunum. Evrópusambandið hefur átt erfitt með að taka á vandræðum Grikkja og fleiri þjóða. En bandalagið og bankarnir þar hafa efni á að spýta þar inn verulegum fjárhæðum til viðbótar.