Versti galli ríkisstjórnarinnar er sljóleikinn. Alls staðar í kringum hana brenna eldar. Alls staðar eru gamlir draugar að vinna gegn hagsmunum hennar og þjóðarinnar. Skilanefndir og slitastjórnir stunda hamslausa græðgi í sjálftekt. Stjórnendur fjármálastofnana og fyrirtækja í eigu banka sýna einbeittan brotavilja bófa. Forskrá jafnvel lygar inn á framtöl fólks. Gamla Ísland bófanna er komið á fulla ferð. Virðist keppa við stjórnvöld um yfirráð fjármála landsins. Sljó ríkisstjórn sér ekki eldana, sem brenna allt um kring. Ekki er nóg, að Jóhanna Sigurðardóttir reki upp neyðaróp.