Því meiri stéttaskipting í baráttunni um þjóðaratkvæðið, því verra. Margir eru sannfærðir um, að yfirstéttin sé að valta yfir sig. Segja því nei. Löng reynsla er af vitlausum ákvörðunum íslenzkra kjósenda. Með því að stilla upp fúlu gengi gamalla pólitíkusa sem vitnum, breikka já-sinnar gjána. Hver vill gera útbrunna pólitíkusa að leiðtogum lífs síns? Margir munu segja nei, bara til að sparka í yfirstéttina. Ég veit ekki, hvort það nægir til sigurs nei-sinna og framlengingar kreppunnar. En hættulegt er að ögra fólki með því að stilla upp pólitíkusum, sem voru jafnmiklir vandræðamenn og kjósendur eru.