Vanheilög er sambúð Bandaríkjanna og Sádi-Arabíu. Miðaldaríkið á Arabíuskaga er eitt versta ríki heims. Þar á ofan notar það olíupeningana frá Bandaríkjunum til að grafa undan vestrænum ríkjum. Til að þjálfa klerka, sem æsa til aðildar að Isis. Og til hryðjuverka meðal nútímalegri múslimaþjóða og á vesturlöndum. Terror múslima er að mestu borgaður af Sádum, rétt eins og moskan í Stigahlíð. Enginn ætti að koma nálægt prinsafansi Sádi-Arabíu, þótt Bandaríkin og forseti Íslands nuddi sér utan í dólgana. Væri ekki hinn öfgafulli wahabismi Arabíu, mundi öfga-íslam ekki vera til meiri vandræða í heiminum en öfga-kristni.