Róttæklingar og íhaldsmenn

Punktar

E. J. Dionne segir í Washington Post og vitnar í Anthony Lake prófessor, að flokkur repúblikana sé orðinn flokkur róttæklinga, sem vilja troða styrjöldum upp á aðrar þjóðir, framleiða svokölluð lýðræðisríki með hervaldi og valta yfir fyrrverandi bandamenn og fjölþjóðastofnanir. Aftur á móti sé flokkur demókrata orðinn flokkur íhaldsmanna, sem vilja halda áratuga gömlum hefðum forseta beggja stjórnmálaflokka, þar á meðal föður núverandi forseta. Þessar gömlu hefðir felast í að fara varlega í að troða bandarískum sjónarmiðum upp á aðrar þjóðir, og að halda góðu sambandi við bandamenn og fjölþjóðastofnanir.