Saari og óráðsíusamtökin

Punktar

Ég er andvígur afslætti af íbúðalánum til fólks með 500 þúsund krónur í kaup eða með miklar eignir. Skil hvorki orð af því, sem Þór Saari segir, né orð samtaka óráðsíufólks. Tel ekki í verkahring skattgreiðenda og lífeyrisþega að leysa réttlætismál úti í bæ. Hins vegar mega skattgreiðendur hjálpa þeim, sem hafa minna en 250 þúsund krónur á mánuði og eru í mínus með eignir. Sumir þeirra ættu ekki að vera fjárráða. Þeim á að hjálpa yfir í gjaldþrot og síðan á hreint núllborð. Aðrir þeirra eru ábyrgir og fái afskriftir að gagni. Ég er andvígur afskriftum til hátekjufólks, eignafólks og fyrirtækja.