Sagður geðveikur

Punktar

Harley Sorensen segir í San Francisco Chronicle, að George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sé geðveikur. Forsetinn upplýsi fullum fetum, að guð almáttugur hafi falið sér að ráðast á Írak. Svona tali enginn valdamaður í heiminum, nema skammhlaup hafi orðið í heilabúinu. Sorensen nefnir ýmis fleiri dæmi um, að forsetinn sé ekki með öllum mjalla.