Sakna gömlu Rafha eldavélarinnar. Var ættuð úr Hafnarfirði og reyndist vel. Ég sneri einum takka til að steikja egg. Nú þarf ég að þrýsta fimm sinnum á takka til að steikja egg. 1. Kveikja á eldavélinni. 2. Velja hellu. 3. Velja hita. 4. Velja hellu. 5. Velja hellustærð. Frábær þægindi. Svo er hér nýtízku Bomann hraðsuðukanna. Allir takkar stríða gegn lögmáli vogarstangar. Svo lekur þessi nýja kanna. Frábær þægindi. Minnir á lyfturnar um daginn á Grand hótel Chamran í Shiraz. Flókin samskipti við takka þurfti til að vekja lyfturnar. Óþolinmóðir lömdu takkaborðið, lyftur trylltust og fluttu fólk á ýmsar óumbeðnar hæðir.