Samfylking græðginnar

Punktar

Samfylkingin var í hruninu hin síðbúna ástkona græðgishyggju. Ofurstyrkirnir sýna hugarfarið. Yfirstétt hennar var ofsahrifin af dólginum Tony Blair, sem breytti brezkum krötum í græðgisflokk bankavina. Þetta lið er enn í toppi Samfylkingarinnar. Ráðherrarnir fengu aðstoðarmenn úr Landsbanka Björgólfs-feðga. Árni Páll Árnason reyndi að afskrifa skuldir græðgisfólks með aðstoð Ingva Arnar Kristinssonar úr Landsbankanum. Katrín Júlíusdóttir er svo forstokkuð, að hún spyr: Er ekki sama, hvaðan gott kemur. Var að tala um Björgólf Thor gagnaversmann. Hann er helzta gæludýrið hjá ráðuneyti hennar.