Sammála um það alvitlausasta

Punktar

Alþingi er ósammála um flest, en sammála um það, sem er alvitlausast. Á þessum tíma peningaleysis samþykkti Alþingi í dag nýtt hátæknisjúkrahús við hlið þess gamla. Getur þó ekki rekið gamla hátæknisjúkrahúsið, getur ekki keypt tæki og getur ekki greitt kaup. Þá þarf endilega að ráðstafa 50 milljörðum króna í hreint rugl. Bara því að litli Mussolini Íslands lá einu sinni veikur og vildi vera gjafmildur á kostnað skattgreiðenda. Frá upphafi var þetta hátæknisjúkrahús bara martröð og er nú verri martröð en nokkru sinni fyrr. Enda er martröðin eitt allra helzta baráttumál verkalýðsrekenda.