Sannir Íslendingar 30%

Punktar

í kjölfar þjóðaratkvæðisins eru Sannir Íslendingar hlutfallsfleiri en Sannir Finnar. Helmingur nei-sinna eru Sannir. Standa í lappirnar og láta ekki ofbeldi nýlenduríkja yfir sig ganga. Borga ekki skuldir óreiðumanna og láta þær sízt yfir börn sín ganga. Vita, að fjármála Hollands er skrítinn og Bretlands er fáfróður. Gegn “gungum og landráðamönnum” þarf nýjan flokk með 30% fylgi. Flokksfeður Ólafur Ragnar Grímsson lýðskrumari og Davíð Oddsson hrunstjóri, formaður Sigmundur Davíð. Málgögn eru næg: Mogginn, Saga, Amx og Ínn. Fyrirmyndin er Bjartur í Sumarhúsum. Kjörorðið er: “Beztir og mestir”.